Description

Styðjum Team CrossFit Reykjavík á leið á CrossFit Games! 💙

Team CrossFit Reykjavík hefur unnið sér inn sæti á CrossFit Games og nú gefst þér tækifæri til að styðja liðið á leiðinni.

Með því að kaupa bol eða leggja fram frjálst framlag styður þú beint við ferðakostnað liðsins. Allur ágóði af bolasölunni og öll frjáls framlög renna óskipt til Team CrossFit Reykjavík.

Forpöntun á bolum

Bolirnir eru seldir í forpöntun og áætlað er að þeir verði tilbúnir til afhendingar eftir um tvær vikur (10. júlí)

Við pöntun getur þú valið um að:

  • Sækja bolinn í CrossFit Reykjavík án aukakostnaðar.
  • Fá bolinn sendan heim, en þá bætist við sendingarkostnaður.

Stærð bolanna er „true to size“ en ef þú vilt oversized fit þá mælum við með því að size up.
Þegar bolirnir eru tilbúnir til afhendingar munu allir sem hafa forpantað fá tölvupóst með nánari upplýsingum um afhendingu eða sendingu.

Takk fyrir stuðninginn, hann skiptir okkur miklu máli.

Kveðja,
Rökkvi, Bjarni, Guðbjörg og Elín Birna