Haustönn Unglingastarfs CrossFit Reykjavíkur
hefst 1. og 2. september 2025
16 vikna haustönn fyrir unglinga í 8.–10. bekk
UnglingaCrossFit er frábær leið fyrir krakka á þessum aldri til að byggja upp styrk, þol og sjálfstraust á öruggan og markvissan hátt.
Við leggjum áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur og að æfingarnar henti bæði byrjendum og þeim sem hafa meiri reynslu.
Á æfingum:
- Kennum við rétta tækni í styrktar- og þolæfingum
- Byggjum upp líkamsvitund og öryggi í hreyfingu
- Búum til jákvætt, hvetjandi umhverfi þar sem allir geta náð árangri
- Hvetjum til heilbrigðs lífsstíls og góðra venja
Markviss þjálfun þar sem unglingarnir fá áskoranir við sitt hæfi, sjá árangur og finna styrkinn aukast með hverri viku.
Tveir hópar í boði:
Unglinga Crossfit 1
Kennt mán, mið, fös kl. 16:00-17:00 og lau kl. 12:00
Unglinga Crossfit 2
Kennt þri og fim kl. 16:00, fös kl. 17:00 og lau kl. 12:00
VERÐ: 61.000 kr.
Ýttu HÉR til að nýta frístundastyrk.
Haustönn Unglingastarfs CrossFit Reykjavíkur